This website is for testing proposes only. Go to isnic.is

Mar 23, 2009

Mar 23, 2009

Einfalt að stofna .IS lén og greiða með korti

Áður en hægt er að skrá .IS lén þarf sá sem ætlar að skrá lénið að skrá sig eða félagið sem "tengilið" hjá ISNIC.
Þetta er gert undir liðnum Tengiliðir, nýskráning hér til vinstri.

Það er á allra færi að skrá lén og misskilningur að til þess þurfi tæknimann eða sérstaka kunnáttu. Lestrarkunnáttan nægir. Við skráningu á léni er einfaldast og fljótlegast að greiða með kreditkorti. Sé það gert er lénið skráð í sjálfvirka endurnýjun að ári, nema slíkt sé afþakkað (afhakað).

Greiðslukerfi léna er algerlega rafrænt. Fyrir kemur að lén lokist vegna greiðslufalls, sem orsakast oftast af því að greiðandinn er rangt skráður upphaflega (af þeim sem skráði lénið) eða vegna þess að greiðsluseðillinn hefur týnst í pósti. Sjálfvirk endurnýjun léna hindrar þetta. Þegar kerfi ISNIC lokar léni hættir vefurinn og tölvupósturinn að virka með tilheyrandi óþægindum. Þetta vill ISNIC hindra og mælir því með því að lénið sé skráð í "sjálfvirka endurnýjun". Sjá nánar á Mín síða eftir innskráningu.

Leave a message and we will reply as soon as we can.
1+3:

Message received