This website is for testing proposes only. Go to isnic.is

Sep 16, 2010

Sep 16, 2010

Hvaða lén eru að losna?

Starfsmenn ISNIC eru oft spurðir um hvort hægt sé að fá upplýsingar yfir nýlega afskráð lén. Svarið er stutt og laggott: Nei.

Ástæðan felst m.a. í verndun réttlætisreglunnar "fyrstur kemur fyrstur fær". Orðasambandið "fyrstur kemur" þýðir að sá aðili sem fyrstur skráir lénið í skráningarkerfi ISNIC fær það. Orðasambandið þýðir hins vegar ekki að sá sem fyrstur sendir okkur bréf og biður um lénið, eða að sá sem kemur fyrstur á staðinn og óskar eftir því munnlega, fái það.

Ástæða þessa er sú að ekki er hægt að sækja um lén hjá ISNIC í venjulegum skilningi, heldur fá viðskiptamenn aðgang að vefþjónustu ISNIC hvar þeir sjálfir skrá lénið á eigin ábyrgð. Þess vegna er ekki heldur rétt að tala um að "ISNIC úthluti lénum", né heldur að "sækja um lén" í venjulegum skilningi því það er ekkert "umsóknareyðublað" eða "umsóknarform" til.

Allir standa jafnt að vígi við skráningu .is-léna og upplýsingar um nýlega afskráð lén myndu fyrr eða síðar setja þá stöðu í uppnám. Eina leiðin til að athuga hvort eitthvert .is-lén er til, eða óskráð, er að nota "Who-is" leitargluggann efst til hægri hér á vef ISNIC og víðar.

Leave a message and we will reply as soon as we can.
1+3:

Message received