Þessi vefur er fyrir prófanir. Fara á isnic.is

12. mar. 2009

12. mar. 2009

Skráningarskírteini .IS léna er í <i>Whois</i>

Whois leitarglugginn, sem er efst til hægri hér á forsíðu vefjarins, er lang mest notaði einstaki liðurinn á vef ISNIC. Who-is, eða lénaleitin, var notuð tæplega 60.000 sinnum af rúmlega 12.000 notendum fyrstu tvo mánuði ársins . Í Whois má ávallt finna upplýsingar um rétthafa (eigendur) og greiðendur léna, tæknilega tengiliði og hýsendur þeirra 23.733 léna, sem þessa stundina enda á rótarléninu .IS.

Finnist lénið ekki í Whois, er það ekki til og því laust til skráningar. Eina leiðin til að tryggja sér lén sem ekki er til, er að skrá það. ISNIC má aldrei taka frá lén, né heldur skrá lén fyrir þriðja aðila.

ISNIC

Skildu eftir skilaboð og við munum hafa samband næsta virka dag.
1+3:

Skilaboð móttekin