Þekkt er að stofndagur og ártal léns (þ.e.a.s. aldur þess) skiptir máli varðandi leitarvélar. Þannig eru eldri lén verðmætari en yngri lén - almennt séð. Það kann því að vera ástæða til að skrá lénið fyrir áramót...
Stjórn ISNIC samþykkti sl. haust eittþúsund króna lækkun á árgjaldi .is-léna. Árgjald léna verður framvegis kr. 6.982 m/vsk. Lækkunin kemur fram á reikningum með útgáfudagsetningu frá og með 11. desember 2011...
Internet á Íslandi hf. (ISNIC) hefur pantað nýjan og margfallt öflugri búnað fyrir RIX (Reykjavik Internet Exchange) svo bjóða megi upp á 10Gb tengingar (í stað 1 Gb nú) og búa þannig í haginn fyrir framtíðina varðandi aukningu innlendrar netumferðar...
Viðskiptamenn ISNIC spyrja stundum fyrir hvað þeir greiða ISNIC einu sinni á ári. Stutta svarið er að lýsa því hvað gerist ef ISNIC-kerfið hættir að þjóna léninu. Þá hættir tölvupóstur að berast á netföng lénsins, vefsíðan sem hvílir á léninu...
Mesti frumkvöðull tölvuheimsins, Steve Jobs, er látinn aðeins 56 ára gamall. Á forsíðu economist.com má lesa þetta í dag: "NOBODY else in the computer industry, or any other industry for that matter, could put on a show like Steve Jobs..." Þetta eru orð að...
Algengasti upphafsstafur orða í íslensku er stafurinn s. Það kemur því ekki á óvart að sá stafur kemur oftast fyrir sem fyrsti stafur í lénum. ISNIC hefur tekið saman saman súlurit sem sýnir dreifingu fyrsta stafs í .is-lénum...
Áður birt 12.9. Reglur um skráningu .is-léna (ISNIC reglurnar) hafa nú verið endurritaðar frá grunni í fyrsta sinn og þær uppfærðar til móts við raunverulegt (tæknilegt) fyrirkomulag lénaskráningarinnar. Ýmsilegt í reglunum var orðið tæknilega úrelt,...
Systurfyrirtæki ISNIC frá Norðurlöndunum auk Færeyja og Grænlands eru í vinnuheimsókn hjá ISNIC í dag og á morgun föstudag vegna árlegs samráðsfundar registrýjanna á Norðurlöndum, NIC-Norden, sem í ár er í fyrsta sinn haldinn í Reykjavík...
ISNIC býður gestum og gangandi upp á fyrirlestrarsal, ásamt kaffiaðstöðu, á 17. hæðinni Höfðaturninum gegn sanngjörnu gjaldi. Salurinn, sem tekur mest 30 manns, var aðallega hugsaður fyrir Internet-tengt fræðslustarf á vegum ISNIC, en nýtist líka vel...
Aðeins tengiliður rétthafa léns, eins og hann er skráður í Whois-gagnagrunni ISNIC (sjá efst til hægri), getur skipt um rétthafa á léni, enda er um afsal á réttindum að ræða...
ISNIC mælir með því að árgjald léna sé endurnýjað með greiðslukorti í stað þess að fá sendan greiðsluseðil árlega. Sífellt fleiri fyrirtæki og einstaklingar nýta sér sjálfvirka endurnýjun ISNIC, enda minnkar þjónustan líkurnar á því að lén...
Meginreglan við skráningu léns er fyrstur kemur fyrstur fær. Þetta þýðir að sá sem skráir lénið "eignast" það. Hafi maður augastað á ákveðnu léni sem er u.þ.b. að renna út eða hefur fengið merkinguna "óvirkt" í rétthafaskrá ISNIC (sjá...
Miðvikudaginn 8. júní verður haldinn svokallaður IPv6-dagur (e. IPv6 DAY), en á þessum degi munu mörg fyrirtæki auglýsa IPv6-vistföng á þjónustu sína, þ.m.t vefþjónustu, póstþjónustu o.fl. Þetta er gert til að kanna áreiðanleika IPv6-tenginga...
Nýleg þjónusta í ISNIC-kerfinu gerir rétthöfum .is-léna kleift að vísa einu léni yfir á annað, þ.e.a.s. að áframsenda veffangið (e. web forwarding). Um er að ræða takmarkaða DNS-þjónustu sem nýtist ágætlega fyrir aukalén, eins og snjöll...
Internet á Íslandi (ISNIC) óskar launamönnum til hamingju með daginn og hvetur fólk til að lesa Vinnuna, tímarit ASÍ, sem borið var í hvert hús í tilefni frídags verkamanna...
Upprunalega aðferðin við að flytja skrár milli véla á Netinu nefnist FTP (File Transfer Protocol). Þessi samskiptaaðferð er algeng enn í dag, 40 árum seinna. Til dæmis til að senda skrár á vefþjóna, til að flytja mjög stór gagnasöfn og til ýmis konar...
Ársskýrsla McAfee® rannsóknarfyrirtækisins með lista yfir hættulegustu lén í heimi: "Mapping the Mal Web 2010" er nýkomin út. Niðurstöður hennar sýna enn á ný frábæra stöðu .is-höfuðlénsins hvað mikinn áreiðanleika og lága villutíðni varðar...
Paul Baran, einn af frumkvöðlum Internetsins, látinn.
Einn af frumkvöðlum Internetsins, Paul Baran , lést á heimili sínu sl. laugardag. Paul var bandarískur verkfræðingur sem vann að hönnun og þróun samskiptatækni hjá RAND á miðjum 6. áratug siðustu aldar, og ásamt Leonard Kleinrock og Donald Davies, telst...
Fjöldi nýskráðra léna í nýliðnum mánuði var 672 lén á móti 558 lénum í febrúar 2010. Aukningin nemur um 20%. Fjöldi eyddra (afskráðra) léna reyndist 225 nú móti um 200 lénum í fyrra, sem gerir um 12% aukningu í afskráningum...
Síðasta opna IPv4 netinu hefur verið úthlutað til APNIC (sjá frétt APNIC). Þetta þýðir að síðustu 5 lausu netunum (/8 netum) verður nú úthlutað sjálfkrafa til hinna staðbundnu skráningarstofa (RIR) sem sjá um að úthluta þeim áfram til...
Upplýsingar um rétthafa og tengiliði allra .is-léna eru opinberar og koma fram í skráningarskírteini lénsins. Auðvelt er að skoða skírteini .is-léna t.d. með því að rita nafn lénsins (ásamt .is-endingunni) inn í Whois-leitargluggann hægra megin hér...
Aðalfundur Internets á Íslandi hf. (ISNIC) verður haldinn í dag, bóndadaginn, 21. jan. kl. 15.00 í ISNIC salnum á 17. hæð Höfðaturnsins við Borgartún, Höfðatúni 2, 105 Reykjavík. Auk venjulegra aðalfundarstarfa verður boðið upp á léttar veitingar...
Traust og trúverðugleiki skiptir meginmáli til þess að ná góðum árangri á Internetinu. Eftir hrun íslenska bankakerfisins í október 2008 höfðu menn áhyggjur af því að trúnaðarbresturinn vegna hrunsins myndi smitast yfir í önnur svið atvinnulífsins...
Alvarleg bilun í rafmagnsbúnaði ISNIC í Tæknigarði olli því að tveir mikilvægir svissar duttu samtímis út um hálffjögur leytið í dag. Um klukkustundar rof varð vegna þessa á uppfærslum DNS-upplýsinga, Svarboxþjónustunni, Samræmdri vefmælingu og...
Læsing léna - ný þjónusta sem tekur gildi 6. janúar 2011
- þessi frétt var fyrst birt 6. desember sl. -
Þegar deilt er um réttinn til ákveðins léns getur komið upp sú staða að yfirvöld þurfi að skera úr um hvor deiluaðila skuli hljóta þann rétt. Slíkur ferill tekur all langan tíma og því kann að vera...
Sé spurt hvað þyrfti til þess að ISNIC myndi loka wikileaks.is vegna innihaldsins, þá er svarið einfalt: Til þess þyrfti dómsúrskurð sem beint væri til ISNIC um að loka léninu. Slíkt hefur aldrei gerst...
ISNIC býður gestum og gangandi upp á að leigja fullkominn fyrirlestrarsal m. kaffiaðstöðu á 17. hæðinni í Höfðaturninum við Borgartún - sömu hæð og skrifstofa ISNIC er til húsa. Salurinn er aðallega hugsaður fyrir Internet-tengt fræðslustarf, en...
Samgönguráðuneytið hefur sett fram drög að frumvarpi til laga um landslénið .is. Hingað til, eða í bráðum 25 ár (sé tekið mið af elsta léninu, sem er hi.is) hafa reglur ISNIC gilt um skráningu léna og dugað ágætlega...
Nýútkomin skýrsla McAfee, "Mapping the Mal Web" 2009, sýnir að höfuðlénið .is mælist enn á ný á meðal öruggustu léna í heimi. Aðeins um 0,3% líkur eru á því að lenda á vafasömu .is-léni hvað vírusa og svik ýmiskonar áhrærir...
Áframsending veffangs (Web forwarding) fyrir aukalén og IDN-lén
Nýleg þjónusta í ISNIC-kerfinu gerir rétthöfum .IS-léna kleift að vísa einu léni yfir á annað með svonefndri "Áframsendingu veffangs" (e. web forwarding). Algengt er að lén með séríslenskum stöfum (IDN-lén) séu sett í áframsendingu og látin vísa...
Vefur ISNIC, www.isnic.is, verður tekinn niður í nokkrar mínútur um klukkan 18 í dag vegna uppfærslu á stýrikerfi vefþjóns ISNIC.
Ekkert rof verður á grunnþjónustu ISNIC við DNS-kerfið vegna uppfærslunnar.
Kerfisstjóri ISNIC.
Sé spurt hvort hver sem er geti skráð hvaða lén sem er? er almenna svarið já. Hver sem er getur vissulega skráð hvaða lén sem er, en hvort hann megi það er annað mál. Það kemur ekki ljós fyrr en síðar. Lén getur haft nægilega mikla skírskotun til...
Starfsmenn ISNIC eru oft spurðir um hvort hægt sé að fá upplýsingar yfir nýlega afskráð lén. Svarið er stutt og laggott: Nei.Ástæðan felst m.a. í verndun réttlætisreglunnar "fyrstur kemur fyrstur fær". Orðasambandið "fyrstur kemur" þýðir að sá...
Næsta námskeið í ISNIC-salnum fjallar um markaðssetningu á Internetinu, 2.-3. september, sem Hjörtur Smárason frá Scope Communications heldur. Á námskeiðinu læra þátttakendur að nýta sér tækifærin sem Internetið býður upp á, en forðast um leið...
Fjöldi virkra punktur-is léna náði 30.000 19.8.2010. Lénafjöldinn hækkar með nýskráningum en lækkar með afskráningum og er því síbreytilegur. Þegar þetta er skrifað er fjöldinn 30.027 lén. Fjölda virkra léna má sjá efst til vinstri hér á síðunni...
Starfsmenn ISNIC eru reglulega spurðir hvað ISNIC geri. Með einföldum hætti mætti svara spurningunni á þessa leið:
ISNIC stendur fyrir IS (.IS) Network Information Center, sem þýðir upplýsingamiðstöð .IS-léna...
Endurmenntun H.Í. heldur í haust námskeið sem hentar vel þeim sem hafa með höndum stjórnun léna- og einkaleyfamála, t.d. hjá stærri fyrirtækjum og stofnunum. Þótt lén (e. domain) myndi varla sjálfstæðan rétt til einkaleyfis (né öfugt) þá hefur...
Vegna uppfærslu verður hluti af innra kerfi ISNIC óaðgengilegur í kvöld, fimmtudag. Þetta á ekki að hafa sjáanleg áhrif á lénaskráningar eða breytingar gerðar í gegnum vefinn, en tilkynningum frá kerfi ISNIC gæti seinkað.
Starfsfólk ISNIC
Þeim sem þurfa meiri aðstoð við skráningu léns en hægt er að veita í síma, eða í Svarboxinu á isnic.is, er góðfúslega bent á afgreiðslu ISNIC. Hún er á 17. hæðinni í nýja skrifstofuturninum við Borgartún í Reykjavík (þar sem Hamborgarafabrikkan...
Öryggi Internetsins var efst á baugi á 38. almenna fundi ICANN, sem fram fór í vikunni í Brussel. ICANN fer með samræmingu og stjórn Internetsins fyrir hönd IANA, sem ISNIC er aðili að. Misnotkun léna í ólöglegum tilgangi er eitt helsta áhyggjuefni þeirra...
Hægt er að láta ISNIC kerfið vísa .IS lénininu (fyrirspurnum á lénið) beint inn á Facebook með því að nota "Áframsendingu veffangs", eins og þjónustan heitir í ISNIC-kerfinu.Þeir sem eiga lén á biðsvæði ISNIC, en enga heimasíðu, eða þeir sem eiga...
Flutningur á vefþjóni ISNIC, ásamt fleiri tækjum, úr Tæknigarði í Höfðatorg gekk samkvæmt áætlun. Vefþjónusta ISNIC lá af þessum sökum niðri í tæpa klukkustund milli kl. 19 og 20 á Hvítasunnudag...
Þar til fyrir fáum árum þótti nauðsynlegt að kunna á stýrikerfið Windows og Microsoft hugbúnað. Þetta hefur breyst með tilkomu Internetsins. Nú er mikilvægara að kunna að nýta sér hugbúnað, sem sérstaklega er þróaður fyrir Internetið...
Internet á Íslandi hf (ISNIC) hefur ákveðnum samfélagslegum skyldum að gegna í ljósi aðstöðu sinnar, sem sá aðili sem sér um frumskráningu og grunnrekstur íslenska höfulénsins .IS. Þegar ákveðið var að flytja rekstur ISNIC úr Tæknigarði í...
Ráðgjafafyrirtækið Atmos ehf. heldur kynningu miðvikudaginn 24. mars kl. 16.00 í nýjum og fyrirlestrarsal ISNIC á hugbúnaðarþjónustu sem kallast "Google Apps Premier Edition". Kynningin verður á 17. hæðinni í Höfðaturninum við Borgartún í Reykjavík...
Fyrsta lénið var skráð á þessum degi fyrir 25 árum. Það var lénið symbolics.com, en árið 1985 voru aðeins 4 .com lén skráð (samtals).
Í dag eru lénin rúmlega 90 milljón og fjölgar í hverri viku um 500 þúsund...
Internet á Íslandi hf. opnar "ISNIC-skólann" mánudaginn 22. mars n.k. á 17. hæðinni í Höfðaturninum við Höfðatorg í Reykjavík. Með opnun "skólans" (sem er 30 manna kennslusalur með óviðjafnanlegu útsýni) hyggst ISNIC m.a...
Skrifstofa ISNIC verður lokuð fimmtudaginn 4. mars og föstudaginn 5. mars vegna flutninga úr Tæknigarði í Höfðaturninn við Borgartún.
Athugið að grunnþjónusta ISNIC við höfuðlénið .IS skerðist að sjálfsögðu ekki...
Fyrir áhugasama, þá má finna ágætt myndband á Youtube sem sýnir með afar einföldum hætti
hvernig Netið virkar í raun og hvaða hlutverki samtengipunktar eins og RIX gegna.
Þarna má einnig finna myndband um hvernig DNS kerfið virkar...
Fyrir kemur að fólk og fyrirtæki missa lénin sín vegna þess að gleymst hefur að greiða árgjaldið til ISNIC, sem er kr. 7.982 m.vsk.ISNIC-kerfið sendir tengiliðum léna ábendingar og aðvaranir í tölvupósti, og póstleggur tilkynningu um eyðingu léns...
Aðalfundur Internets á Íslandi hf. (ISNIC) verður haldinn kl. 17.00 í dag í stofu 3 í Tæknigarði. Auk venjulegra aðalfundarstarfa verður boðið upp á léttar veitingar í Matstofu Tæknigarðs eftir fundinn. Hluthafar eru hvattir til að mæta.
Starfsfólk og stjórn ISNIC eru stolt og þakklát fyrir nýliðið ár, sem er það besta í 20 ára sögu félagsins hvað nýskráningar léna varðar. Þrátt fyrir niðurfellingu stofngjalds léna þann 1. desember 2008, sem lækkaði fyrsta-árs-kostnað léna um...
Skrifstofa ISNIC verður opin til hádegis á Þorláksmessu, en er lokuð á aðfangadag. Skrifstofan opnar aftur mánudaginn 28. desember, en er lokuð á gamlársdag samkvæmt venju. Vefur ISNIC er auðvitað opinn yfir jólin sem endranær...
Sá sem skráir lén er ábyrgur fyrir skráningunni gagnvart þriðja aðila. Þótt hægt sé að skrá lénið presidentobama.is, er eins líklegt að bandaríska sendiráðið myndi gera athugasemdir, yrði það skráð af öðrum en forsetanum...
Fjöldi .IS léna hefur nú náð 27.000 lénum og hefur vaxið hratt undanfarin tvö ár. Þannig jukust nýskráningar í september um 77% á milli ára og í nýliðnum október um 45% milli ára. Aukning virkra léna undanfarna 12 mánuði er 34% og aukningin sl...
Nýleg
samþykkt
ICANN um IDN þjóðarlén, sem mbl.is birti frétt um í síðustu viku, hefur ekki áhrif hér á landi eins og skilja mátti af fréttinni. Breytingin snýr eingöngu að þjóðarlénum á IDN staðli, þ.e...
Fyrirtækið Bolt, Beranek and Newman (betur þekkt sem BBN) sem tók þátt í að stofna Arpanet fyrir um 40 árum, hefur nýlega verið keypt af Raytheon, en Arpanet er forveri Internetsins...
Reglum um .DE lénið hefur nú verið breytt. M.a. hefur verið opnað fyrir skráningu á lénum sem eru tveir stafir og framvegis má skrá lén sem líkjast öðrum lénum í öðrum rótarlénum s.s. .com og .net. Lén sem líkjast skráningarplötum bifreiða í...
Fyrir áhugamenn, þá er talan 42 alltaf skemmtileg.Fyrir ISNIC, þá er hún einnig skemmtileg því í 42. viku skráðu 42 einstaklingar lén af alls 152 nýskráðum lénum í vikunni.
Tengiliður rétthafa hefur tögl og hagldir á léninu
Af gefnu tilefni er athygli rétthafa léna vakin á því að svonefndur "tengiliður rétthafa" (í ISNIC kerfinu) getur breytt öllum skráningarupplýsingum lénsins. Tengiliður rétthafa vinnur í umboði rétthafans og getur sem slíkur t.d...
Símsvörun hjá ISNIC var með skertum hætti á miðvikudag vegna heimsóknar átta starfsmanna frá .SE (SENIC, Internetfoundation of Sweden). Viðskiptamenn eru beðnir afsökunar á minni þjónustu vegna þessa...
Fyrir kemur að lén renna sjálfkrafa út vegna þess að láðst hefur að greiða árgjald lénsins. Við það stöðvast bæði tölvupóstur og vefurinn, með tilheyrandi óþægindum. ISNIC-kerfið býður þeim sem vilja greiða árgjaldið með greiðslukorti að...
Mikil aukning varð í nýskráningum .is-léna hjá ISNIC í ágústmánuði - þvert á það sem margir höfðu spáð. Þannig voru 523 lén skráð í ágúst í ár móti 337 lénum í ágúst í fyrra, sem þýðir 55% aukningu...
2. september 1969 voru fyrstu vélarnar tengdar við ARPAnetið, forvera Internetsins. Tvær vélar voru samtengdar hjá UCLA og var það kallað "fyrsti andardráttur internetsins", af þeim sem fyrir því stóðu...
21. júlí 1989 var fyrsta beina IP sambandinu
komið á á milli Íslands og umheimsins. Á þessum degi, fyrir réttum 20 árum, tengdist SURIS
(fyrirrennari Internet á Íslandi hf) beinu IP sambandi frá Tæknigarði Háskóla
Íslands og til NORDUnet í Lyngby í...
Nýskráningar léna fleiri en afskráningar þrátt fyrir allt
Efst til vinstri, hér á vef ISNIC, er tala sem sýnir heildarfjölda skráðra .is léna á hverjum tíma. Talan hækkar við nýskráningar en lækkar við afskráningar. Sem stendur [19.5. kl. 09:50] eru 24.964 .is lén skráð...
ISNIC hefur samið við Autonomica AB (Netnod) í Svíþjóð um IP fjölvarpsþjónustu (anycast) við .IS lénið. Autonomica er rekstaraðili eins af rótarþjónum netsins (I-root, á vegum NORDUnet) og hafa þeir komið upp þjónustuvélum á 33 stöðum vítt og...
1859 ný lén voru skráð hjá ISNIC fyrstu þrjá mánuði ársins 2009 móti 1315 lénum á fyrsta ársfjórðungi 2008. Aukningin, rúmlega 40%, kann að koma ýmsum á óvart á þessum tímum.ISNIC hefur gert nokkrar mikilvægar breytingar undanfarið ár, sem allar...
ISNIC - Internet á Íslandi hf. verður í páskafríi frá og með morgundeginum (9. apríl) og snýr aftur þriðjudaginn 14. apríl.
Hægt er að skrá lén og greiða með korti yfir páskana eins og alla aðra daga. Slík lén verða virk samstundis...
7. apríl er merkilegur dagur. Þennan dag árið 1969 var birt ritið RFC1 - Host Software eftir Steve Crocker. RFC stendur fyrir "Request for Comments", og er ritröð sem lýsir þeim stöðlum sem flest netsamskipti fylgja...
Áður en hægt er að skrá .IS lén þarf sá sem ætlar að skrá lénið að skrá sig eða félagið sem "tengilið" hjá ISNIC.Þetta er gert undir liðnum Tengiliðir, nýskráning hér til vinstri.
Það er á allra færi að skrá lén og misskilningur að til...
Whois leitarglugginn, sem er efst til hægri hér á forsíðu vefjarins, er lang mest notaði einstaki liðurinn á vef ISNIC. Who-is, eða lénaleitin, var notuð tæplega 60.000 sinnum af rúmlega 12.000 notendum fyrstu tvo mánuði ársins...
Aukning í nýskráningum léna eftir niðufellingu stofngjaldsins
Árið 2009 byrjar vel hjá ISNIC, enda var stofngjald .is-léna fellt niður 1. desember sl. Niðurfelling stofngjaldsins lækkaði kostnaðinn við stofnun .is-léna um 4.532 krónur, eða 36% - geri aðrir betur!ISNIC býst við að verðlækkunin skili sér stórauknum...
ISNIC opið 24/7 - gleðileg jól gott og farsælt nýtt ár.
Skrifstofa ISNIC verður opin milli jóla og nýárs, eins og venjulega, en lokuð föstudaginn 2. janúar. Við tökum svo til óspilltra málanna mánudaginn 5. janúar 2009.
ISNIC sem slíkt er alltaf opið, enda rótarlénið .IS notað allan sólarhringinn alla daga...
Verðskrá ISNIC hefur verið einfölduð og lækkuð samkvæmt samþykkt stjórnar 30.10.2008. Breytingin gildir frá 1. desember 2008 og er sem hér segir:
Stofngjald léna, kr. 4.532, hefur verið fellt niður. Kostnaður við stofnun .is léns verður aðeins fyrsta...
19:30. Uppfærslu vefþjóns er lokið. Nokkrar mikilvægar kerfisbreytingar voru gerðar í dag, en notendur ættu ekki að verða varir við þær.Viðskiptavinir ISNIC eru beðnir velvirðingar á truflunum sem orðið hafa vegna uppfærslunnar, sem reyndist nauðsynleg...
Smávægileg röskun verður á þjónustu ISNIC laugardaginn 29.11.2008 vegna uppfærslu á vefþjón ISNIC.
Áætlað er að þjónustan verði óaðgengileg á milli kl. 13 og 16 að einhverju leyti...
Með því að smella á "Svarboxmerkið", hér að ofan, má komast
í beint samband við ISNIC og fá aðstoð um hælt.d. við
að sækja um lén, breyta greiðanda eða flytja lén...
Erlendir rétthafar .is-léna geta framvegis verið tengiliðir fyrir sín eigin lén og skráð .is-lén, án kröfu um innlendan tengilið. Breyting þessi er til samræmis við breytingar hjá mörgum erlendum skráningaraðilum s.s. IIS sem rekur .se (Svíþjóð)...
Nýung í þjónustu ISNIC, "Vottun ISNIC", leit dagsins ljós fyrir skömmu.
Vottunin fellst í því að allir rétthafar .is léna með íslenska
kennitölu fá sérstaka vottun á skráningarskírteini lénsins (Wohis)...
Stjórn ISNIC hefur nú útvíkkað fyrri ákvörðun um skráningu .is-léna á erlenda
rétthafa þannig, að ekki er lengur krafist að tilgreindur sé umboðsmaður (hvorki erlendur né innlendur)...
Allir sem eiga lén, eða vilja eignast lén ættu að "læra á ISNIC".Hér er eru nokkur atriði varðandi ISNIC-kerfið:
"Whois"-leitarglugginn er efst til hægri á isnic.is. Skráið lénið þar inn. Skráningarskírteini allra léna sem enda á .is finnst í...
Stjórn Internets á Íslandi hf. ákvað í haust að engar verðbreytingar skuli gerðar á verðskrá félagsins að sinni, þrátt fyrir rúmlega fimmtungs aukningu rekstrarkostnaðar milli ára. Stjórnin vill með þessu gefa starfsmönnum og stjórnendum rými til...
Þar sem ISNIC hefur ákveðið að leyfa skráningu erlendra umboðmanna
.IS léna, og til þess að skerpa á kröfum varðandi skráningu erlendra rétthafa,
verða eftirfarandi breytingar gerðar á skráningarreglum ISNIC...
Rótarlén heimsins eru mjög misjöfn að gæðum. Tæknilegt öryggi rótarléna, magn ruslpósts sem berst frá þeim og áreiðanleiki upplýsinga (Whois) um rétthafa eru atriði sem byggja upp trúverðugleika rótarléna...
Þeir sem eiga kreditkort geta nú skráð lén utan opnunartíma ISNIC.Það er bæði öruggt og einfalt.Skrefin eru þessi:
Veldu "Tengiliðir" (vinstra megin).Fylgdu leiðbeiningunum nákvæmlega. Mundu að opna tölvupóstinn og staðfesta...
Stjórn ISNIC samþykkti fyrir sitt leyti, á opnum stjórnarfundi með starfsmönnum 11. september, að aflétta skilyrði um innlendan tengilið rétthafa. Um formbreytingu yrði að ræða á reglu 2.3.1. hjá ISNIC þar sem skilyrði um innlendan tengilið er afnumið...
Loksins er hægt að greiða fyrir .is lén með greiðslukorti. Einföld en örugg kortagátt ISNIC, sem opnaði 10. júlí, gerir fólki kleift að skrá lén og greiða með korti. Einnig er nú hægt að setja lénin í svonefnda örugga endurnýjun, sem minnkar...
Skrifstofa Internets á Íslandi hf. fer í fjögurra daga helgarfrí og verður því lokuð föstudaginn 1. ágúst. Þeir sem greiða með korti geta þó skráð lén og afgreitt sig sjálfir allan sólarhringinn í sjálfvirku skráningarkerfi ISNIC...
Sjálfvirk endurnýjun léna. Nú geta rétthafar .is-léna sett lénin sín í svokallaða sjálfvirka endurnýjun og minnkað með því áhættuna á því að lénið verði óvirkt vegna greiðslufalls á árgjaldinu - t.d...
Internetið verður sífellt mikilvægara eftir því sem fleiri þjónustur reiða sig á virkni þess. Auglýsing, sem sýnir fyrirtæki sem er í rúst eftir að Netið datt út, lýsir vel ástandinu sem skapast þegar enginn tölvupóstur berst og fyrirtækjavefurinn...
Lengi hefur verið þekktur veikleiki í DNS samskiptaaðferðum sem getur
valdið því að rangt eða illa uppsettir nafnaþjónar svara með röngum
upplýsingum (vísvitandi eða óvart) þegar í þeim er flett ákveðnum lénum.
Þann 8. júlí sl...
Til þess að skráð sig inn á vef ISNIC þarf maður að vita NIC-auðkennið, sem er notendanafn allra skráðra tengiliða í ISNIC-kerfinu. NIC-auðkennin koma fram á skáningarskírteini lénsins, en það er að finna undir Whois leitarglugganum efst til hægri...
Vegna fréttar mbl.is 24.6. um að til standi að útbúa ný rótarlén, vill ISNIC koma eftirfarandi upplýsingum á framfæri:
Í fréttinni er því ranglega haldið fram að lén muni klárast um 2011. Þetta er á misskilningi byggt...
NIC-fyrirtækin á norðurlöndunum (NIC = Network Information Center) komu saman í fjórða skiptið á NIC-Norden 17. júní sl. Í þetta sinn hýsti .fo (Færeyjar) fundinn, sem var haldinn á Hótel Hafnia í Þórshöfn...
ISNIC sendir landsmönnum hamingjuóskir í dag, þjóðhátíðardaginn 17. júní. Skrifstofa Internet á Íslandi hf. er lokuð, en hægt að skilja eftir skilaboð í Svarboxinu á forsíðu isnic.is eins og endranær, sem verða svo afgreidd á morgun.
ISNIC er í tiltektarham og hvetur nú rétthafa (eigendur) léna til að skoða skráningarskírteini lénanna með því að skrifa lénið, ásamt .is-endingunni, inn í Whois leitargluggann efst til hægri hér á forsíðunni...
Intel kynnti 8086 örgjörvann til sögunnar þann 8. júní 1978. Tæknin, sem heldur uppi hvað flestum tölvum í dag, er m.ö.o. orðin 30 ára gömul. Intel, fyrirtækið sem fann upp X86 örgjörvann, verður hins vegar 40 ára þann 18. júlí nk.
Fjarskiptahluti Intís heitir RIX (Reykjavík Internet Exchange) eða rix.is. Þar skiptast innlendir internetþjónustuaðilar á ip-umferð sín í milli til þess að spara kostnað og lágmarka flæði innlendrar netumferðar um útlandasambönd...
Allir rétthafar (eigendur) léna ættu að gæta þess að vera alla jafna tengiliðir rétthafa sinna eigin léna. Skrifið nafn lénsins ásamt .is endingunni inn í Whois-leitargluggann (efst til hægri hér á síðunni) og skoðið skráningarskírteini lénsins...
Internet á Íslandi hf. (ISNIC deildin) og Internet Corporation for Assigned Names and Numbers (ICANN) hafa skrifað undir tvíhliða samning um reksturinn á rótarléninu .IS. Með honum er viðskiptasambandinu, sem ríkt hefur milli ISNIC og ICANN í áraraðir, komið...
Þennan dag fyrir 39 árum (7. apríl 1969) hófst uppbygging ARPANET með samningi á milli ARPA og BBN. Þessi samningur lagði grunninn að Internetinu eins og við þekkjum það í dag. Annar mikilvægur samningur er staðallinn RFC-1, sem einnig er dagsettur þennan...
Rétthafar (eigendur) léna þurfa að skrá sig inn á vef ISNIC til þess að breyta upplýsingum tengdum léninu, s.s. netfangi, heimilisfangi, eða jafnvel að umskrá lénið á nýjan rétthafa. Til þess að geta skráð sig inn (sjá innskráningu efst á síðunni)...
Aðalfundur Internets á Íslandi hf. (INTÍS) verður haldinn í Tæknigarði föstudaginn 14. mars klukkan 16:00. Á fundinum verður, auk venjulegra aðalfundarstarfa, kynnt samrunaáætlun félagsins og Modernus ehf, sem ákveðin var á síðasta ári...
Internet á Íslandi (INTÍS) hefur fengið nýja Asterisk ip-símstöð og nýtt símanúmer um leið. Nýja númerið er 578 2030. Gamla númerið tilheyrði símakerfi Háskóla Íslands og þar var ekki einu sinni símsvari...
Fjöldi virkra .is léna náði 20.000 þann 29. nóvember sl. Fjöldinn er síbreytilegur frá einum tíma til annars. Hann eykst með nýskráningum og minnkar með afskráningum, eða þegar lénum er lokað. "Tuttuguþúsundasta lénið" var tengt kl...
INTÍS hefur hingað til nær eingöngu fengið undirritaðar beiðnir sendar með faxi. Ragna Marteinssdóttir, grafískur hönnuður, brá á það ráð í gær að ljósmynda beiðni til INTÍS með GSM símanum sínum og senda okkur hana í tölvupósti...
ISNIC hefur breytt uppsetningakröfum léna á þann veg að ekki er lengur krafist zone-transfer aðgangs að lénum og ekki þarf lengur að vera MX færsla fyrir lén.
Uppsetningakröfur léna eins og þær eru hverju sinni er hægt að finna hér á vefsíðu okkar...
Eins og menn vita hefur erlendum umsækjendum um .IS lén hingað til verið skylt að staðfesta eign sína á samsvarandi vörumerki (orðmerki) hjá Einkaleyfastofu - áður en til skráningar lénsins kemur. Þessari kröfu hefur nú verið aflétt...
Internet á Íslandi hf. (INTÍS) hefur nú tekið samskiptakerfið "Svarbox" í notkun til hagræðingar fyrir viðskiptavini. Með því að smella á "Opna Svarbox" tengilinn, efst til vinstri á forsíðu isnic.is, komast viðskiptamenn í beint skriflegt samband við...
Biðsvæði fyrir lén tilbúið - fleiri nýjungar væntanlegar.
Eins og fram hefur komið urðu breytingar á stjórn og eignarhaldi Internets á Íslandi hf. sl. vor. Ný stjórn ákvað að strax skyldi hefjast handa við innleiðingu á löngu tímabærum breytingum sem starfsmenn og viðskiptamenn höfðu lengi mælst til að...
Væntanlegar breytingar á þjónustu ISNIC - sjá póstlista
Eins og sumum ykkar er eflaust kunnugt þá skipti Internet á Íslandi hf. um eigendur í vor. Nýir eigendur og starfsmenn hafa hug á að gera nokkrar breytingar á þjónustu ISNIC, en áður viljum við heyra álit notenda...
Breytingar standa yfir á aðstöðu ISNIC í Tæknigarði frá 3. júlí til föstudagsins 6. júlí. Viðskiptamenn eru beðnir að sýna skilning vegna óhjákvæmilegrar skerðingar á símaþjónustu á þessum tíma.
ISNIC tekur upp sumartíma. Þjónustusími ISNIC verður opinn til klukkan 16:00 og gildir sumartíminn til 7. ágúst. Tölvupósti er svarað frá átta til fimm en símaþjónustan opnar eins og venjulega klukkan níu. Vefurinn er ávallt opinn og viðskiptamenn eru...
Fyrir skömmu ákvað Bluehost Inc. (vistunaraðili léna í Norður Ameríku) að breyta tæknilegri tilhögun vistunar sinnar á .is-lénum (og öðrum lénum) þannig að ekki er lengur fullnægt þeim tæknilegu kröfum gerðar eru til .is léna...
.is með fjórða lægsta hlutfall varhugaverðra léna í heimi
Nýlega var birt skýrsla frá McAfee um mælingar sem gerðar voru á þeirra vegum á ýmsum hliðum öryggismála hjá skráðum undirlénum hinna ýmsu þjóðarléna og almennra rótarléna. Þessi skýrsla var birt þann 12. mars sl...
Stjórn ISNIC hefur samþykkt að hætta að innheimta opnunargjald vegna léna
sem opnuð eru eftir lokun vegna greiðslufalls eða rangrar uppsetningar.
Samþykktin tekur gildi 1. júlí 2005.
Frekari lækkun á léngjöldum léna með íslenskum sérstöfum.
Stjórn ISNIC hefur ákveðið að lækka verulega gjöld vegna
stofnunar og endurnýjunar á lénum með sérstöfum í þeim
tilfellum er sami aðili skráir lén stafsett bæði með og
án íslenskra sérstafa...
Um skráningu léna með sérstöfum -- AF GEFNU TILEFNI
Um skráningu léna hjá ISNIC
Meginregla við skráningu léna hjá ISNIC er "fyrstur kemur, fyrstur fær". Reglan er óháð hver á í hlut eða hvaða lén sótt er um. Þessi aðferð er notuð af öllum skráningaraðilum í heiminum þar sem skráning léna er...
Gjaldskrárbreyting vegna léna sem innihalda séríslenska stafi.
Vegna ófullkominnar virkni léna sem innihalda séríslenska stafi
hefur stjórn ISNIC ákveðið að veita 50% afslátt af stofngjaldi og
árgjaldi léna sem innihalda séríslenska stafi frá 1. janúar 2005
til ársloka 2006.
Þann 14. október sl. luku
RIPE NCC (Réseaux IP Européens Network Coordination Centre)
og Internet á Íslandi hf. (ISNIC) við að setja upp spegileintak
("mirror instance") af einum af rótarnafnaþjónum Netsins. Þetta eintak er
sett upp við skiptipunkt...
Þann 1. júlí 2004 byrjaði ISNIC að taka við skráningum lénnafna sem innihalda séríslenska stafi. Fram til 1. janúar 2005 hafa aðilar sem þegar hafa skráð lén forgang á skráningu léna með séríslenskum stöfum samanber bráðabirgðaákvæði 14 í...
Sett hefur verið upp þjónusta á TCP porti 4343 á whois.isnic.is þar sem hægt er að athuga hvort lén sé þegar skráð.
Þjónustan tekur við lénnafni einu og sér á línu og skilar niðurstöðu ef lénið er skráð eða tilkynningu ef það er ekki skráð...
Nú hefur verið uppfærður gagnagrunnur sá er vefur og rétthafaskrá ISNIC notar og eins hafa verið gerðar ákveðnar breytingar sem ættu að hraða vinnslu miðað við það sem hefur verið undanfarna daga.
Jæja, þá hefur loksins verið lokið við umskráningarferil á vefsvæði
ISNIC og er nú hægt að umskrá lén endurgjaldslaust með því að fara á
Mín Síða, velja lénið og smella á "Umskrá"
takkann...
Ekki hefur enn tekist að klára umskráningarferli en verið er að vinna í því og verður sett tilkynning hér á forsíðuna þegar því er lokið.
Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að hafa í för með sér.
Settar hafa verið fram tillögur um breytingar á reglum
um skráningu og stjórnun á léninu .is. Sjá nánari upplýsingar
um þessar breytingar á póstlista
ISNIC um lénamál...
Athugið að þeir tengiliðir sem stofnaðir eru samkvæmt upplýsingum á umsóknum verða að fylgja leiðbeiningum sem koma í tölvupósti til að setja lykilorð á aðganginn...
Væntanlegar breytingar á rafmagnsmálum í vélarsal RHI í Tæknigarði valda því að taka þarf rafmagn af aðstöðunni í stuttan tíma kl. 23:00 næstkomandi fimmtudag (13. feb 2003) en ekki er búist við að þetta hafi áhrif á rekstur ISNIC eða RIX enda er...
Rafmagn var tekið af vélarsal RHÍ í Tæknigarði rétt eftir klukkan 18 í dag og átti að slá inn varastraumi innan 5 mínútna, af því varð ekki og kláraðist rafmagnið af varaaflgjöfum ISNIC og RIX um kl. 18:32 og fór því rafmagn af vélum og beinum í...
Um mánaðamótin september/október n.k. tekur nýtt umsóknareyðublað gildi.
Megin breyting frá fyrri umsókn nær til greiðanda léns. Greiðandi léns kemur í stað þess sem áður var "tengiliður greiðanda"...
Sú breyting verður gerð 1. október n.k. að greiðandi kemur í stað tengiliðs
greiðanda. Grein 1.1.6. í reglum ISNIC breytist sem hér segir:
1.1.6. Greiðandi
Greiðandi tekur við tilkynningum/reikningum vegna léngjalda og
ber ábyrgð á greiðslu þeirra...
Tilboð í tölustafa og frátekin lén voru opnuð
miðvikudaginn 29. maí 2002 kl. 11:00 í Tæknigarði.
Eftirfarandi tilboð standa til 2. júlí 2002. Lén sem óskráð verða í lok 2. júlí 2002 verða laus til almennrar skráningar 3. júlí 2002...
Internet á Íslandi hf, ISNIC, hefur ákveðið
að bjóða upp eftirtalin lén í samræmi við
bráðabirgðaákvæði A í reglum um skráningu
léna og stjórnun á léninu .is
Boðin verða upp:
a) öll lén þar sem nafn léns inniheldur aðeins tölustafi...
Opnunargjaldi breytt í samræmi við samþykkt stjórnar ISNIC á stjórnarfundi
13. febrúar 2002. Breyting gildir fyrir opnun á lénum sem lokað er eftir
14. febrúar 2002. Nýtt opnunargjald er kr. 3.735,- var áður 6.225,-
Opnunargjald er nú innheimt áður en lén...
Minnt er á að eins-bókstafs lénum, sem enn eru óskráð í lok dagsins í dag, verða frá og með morgundeginum 1. febrúar 2002 skráð samkvæmt reglunni "fyrstur kemur - fyrstur fær".
Lén sem tilboð bárust í hafa verið skráð utan j.is
Handhafi tilboðs í j.is hefur frest til 31. janúar 2002
til að ganga frá skráningu enda eina tilboðið í lénið...
Internet á Íslandi hf, ISNIC, heldur
uppboð á eins-bókstafs lénum sem
hingað til hafa verið frátekin. Um
er að ræða lénin a.is, b.is, c.is til z.is,
alls 26 lén enda verða bókstafir að
tilheyra ensku stafasetti...
Tillögur um
breytingar á reglum ISNIC, sem sendar voru til
umsagnar á domain@lists.isnic.is 11. okt 2001, ganga í gildi
1. desember 2001 nema sterk rök gegn gildistöku komi fram
fyrir þann tíma.
Undanfarið hafa borist umsóknir um lén sem ekki er búið að vista eða eru ekki rétt uppsettar hjá vistunaraðila, Internet þjónustuaðila eða þeim sem vistar lénið...
Vegna áskorana hefur verið ákveðið að allir sem óska eftir flutningi á léni geti valið um hvort greiðslumáti á flutningsgjaldi er staðgreiðsla eða samkvæmt reikningi eftirá. Flutningur verður því framkvæmdur hvort sem búið er að greiða...