Breyting á vef ISNIC og umsóknareyðublaði
Um mánaðamótin september/október n.k. tekur nýtt umsóknareyðublað gildi. Megin breyting frá fyrri umsókn nær til greiðanda léns. Greiðandi léns kemur í stað þess sem áður var "tengiliður greiðanda".
Hlutverk greiðanda er að taka við tilkynningum/reikningum vegna léngjalda og ber hann jafnframt ábyrgð á greiðslu þeirra. Við skráningu á greiðanda er nafn hans skráð eins og það er í þjóðskrá hverju sinni. Ennfremur getur ISNIC uppfært aðrar upplýsingar um greiðanda samkvæmt þjóðskrá þar sem það á við. Slík uppfærsla er þó eingöngu framkvæmd í þeim tilfellum er bréf, send til greiðanda, komast ekki til skila og eru endursend til ISNIC.
Nýr vefur verður jafnframt tekinn í gagnið um þessi mánaðamót. Greiðandi verður tilgreindur fyrir hvert lén. Stjórnunarlegur tengiliður/tengiliður rétthafa getur nú breytt upplýsingum um rétthafa, tengiliði og greiðanda um vef ISNIC. Til að breyta upplýsingum þarf að tilgreina notandanafn og lykilorð. Notandanafn er skráð NIC-handfang stjórnunarlegs tengiliðs en lykilorði verður úthlutað hjá ISNIC. Notendanafn og lykilorð verða send í tölvupósti til stjórnunarlegra tengiliða áður en nýr vefur verður virkur.
Nýtt umsóknareyðublað er að finna á slóð:
http://www.isnic.is/domain/forms.php
Breytingar á umsóknareyðublaði eru þessar:
- Greiðandi kemur í stað "tengiliðs greiðanda". Jafnframt er skilyrði sett að greiðandi sé tilgreindur á umsókn ásamt viðeigandi upplýsingum.
- Tilgreina þarf Borg/Sveitarfélag hjá rétthafa/umsækjanda.
- Atriði "Umbeðið lén til vara" er fellt niður.
- Bætt hefur verið við möguleika á að tilgreina nafnaþjóna. Nú er unnt að tilgreina fjóra nafnaþjóna (vélarnöfn).
Breytingar/viðbætur á vef eru helstar þessar:
- Breyting. "Whois uppfletting:", leit í rétthafaskrá, reitur hægra megin á síðu hefur verið fjarlægður. Leit í rétthafaskrá (whois gagnagrunni) má nú framkvæma úr reit efst til hægri á síðu eða með því að velja "Rétthafaskrá/ISNIC" úr valmöguleikum vinsta megin á síðunni.
- Breyting. "Uppsetning rétt?", könnun á uppsetningu léns, reitur hægra megin á síðu hefur verið fjarlægður. Við könnun á uppsetningu léns er nú valið "Lén/Prófa uppsetningu" úr valmöguleikum vinstra megin á síðu.
- Viðbót. Unnt er að prófa uppsetningu nafnaþjóna með valkosti "Nafnaþjónar/Prófa uppsetningu" vinstra megin á síðu.
- Viðbót. Tengiliðir geta nú skráð sig á vefnum og fengið úthlutað NIC-handfangi um leið.
- Viðbót. Tengiliðir geta nú skráð sig inn með notandanafni (NIC-handfang) og lykilorði og breytt upplýsingum um sjálfa sig. Stjórnunarlegur tengiliður getur breytt upplýsingum um lén sem hann er skráður stjórnunarlegur tengiliðir fyrir að undanskildu: kennitölu léns, nafni rétthafa léns og nafnaþjónum léns.
Eftirfarandi er væntanlegt á vef ISNIC:
- Skráning léns um vefinn.
- Skráning nafnaþjóns um vefinn.
- Flutningur á léni (breyta nafnaþjónum).
- Greiðsla léngjalda um vefinn.