Þessi vefur er fyrir prófanir. Fara á isnic.is

22. jan. 2002

22. jan. 2002

Staða tilboða

Lén sem tilboð bárust í hafa verið skráð utan j.is

Handhafi tilboðs í j.is hefur frest til 31. janúar 2002 til að ganga frá skráningu enda eina tilboðið í lénið.

Öll eins-bókstafs lén sem óskráð verða 1. febrúar n.k. munu þá falla undir úthlutunarregluna "fyrstur-kemur-fyrstur-fær". Sérstök athygli er vakin á að umsóknir um eins-bókstafs lén sem berast fyrir 1. febrúar 2002 eru ekki teknar gildar.

Umsóknir er unnt að senda á fax ISNIC, 561-0999. Dagsetning umsókna er berast í bréfapósti miðast við komudag til ISNIC.

8. janúar 2002

Tilboð í eins-stafs lén voru opnuð kl. 13:00 föstudaginn 4. janúar 2002. Tilboð bárust í lénin:c.is, h.is, j.is, t.is, x.is og z.is

Handhafar hæstu tilboða í viðkomandi lén voru:

  1. Harpa S. Höskuldsdóttir, kt: 090655-5589, í lénið: j.is
  2. Íslandssími hf., kt: 600898-2059, í lénið: c.is
  3. Ólafur Haukur Johnson, kt: 201251-3899, í lénin: h.is og x.is
  4. Tölvumyndir hf., kt: 440786-1119, í lénið: t.is
  5. Z-brautir og Gluggatjöld, kt: 640478-0399, í lénið: z.is

Handhafar ofangreindra tilboða hafa fjóra (4) virka daga frá dagsetningu birtingar tilboðs þeirra á vef ISNIC til að ganga frá umsókn, greiðslu og vistun á léninu samkvæmt reglum ISNIC, svo unnt sé að skrá lénið.

Falli handhafi frá tilboði með því að ganga ekki frá nauðsynlegum atriðum svo skrá megi lénið er næsthæsta boði tekið með birtingu á léni og handhafa næsthæsta tilboðs á vef ISNIC. Öll tilboð renna út 31. janúar 2002. Þátttakendur í útboði eru bundnir við boð sín til 31. janúar 2002. Þó ber að athuga að skráning á tilboðs-léni fyrir 31. janúar 2002 ógildir önnur tilboð í lénið.

Eins-stafs lén sem enn eru óskráð 31. janúar 2002 verða laus til almennrar umsóknar 1. febrúar 2002.

Skildu eftir skilaboð og við munum hafa samband næsta virka dag.
1+3:

Skilaboð móttekin